Skip to content
Logo
Keppnisforritunarfélag Íslands
Félag keppnisforritara á Íslandi
GitHubDiscordFacebook

Aðalfundur 2024

Við viljum tilkynna að aðalfundur Keppnisforritunarfélags Íslands verður haldinn 6. janúar 2024 kl. 17:00 – 19:00 í Múlalind 6, Kópavogi. Aðeins þeir félagsmenn sem hafa greitt félagsgjöld seinasta árs hafa atkvæðisrétt. Eftir fundinn býður félagið öllum félagsmönnum upp á kvöldmat.

Leitast er eftir nýrri stjórn; 1 formaður, 2 meðstjórnendur og 3 varamenn. Félagsmenn sem hafa áhuga á að bjóða sig fram eru beðnir um að senda póst á núverandi stjórn þar sem fram kemur nafn á frambjóðanda og þær stöður sem boðið er fram í. Einnig biðjum við um að tillögur að lagabreytingum og aðrar ábendingar berist á sama netfang. Frambjóðendur og tillögur að lagabreytingum verða settar hér á vefsíðu félagsins eftir því sem þær berast.

Dagskrá

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
  2. Skýrsla stjórnar flutt.
  3. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til afgreiðslu.
  4. Lagabreytingar.
  5. Kosning stjórnarmanna.
  6. Kosning skoðunarmanns reikninga.
  7. Ákvörðun félagsgjalds.
  8. Kosning liðsstjóra og varaliðsstjóra Ólympíuliðs Íslands í forritun.
  9. Önnur mál, ef tími leyfir:
    1. Starfsemi félagsins næsta ár.

Tillögur að lagabreytingum

  1. Bæta við 13. grein: Félagið skal sjá um að kjósa háskólakeppnisstjóra á Íslandi fyrir hvert ár, og skal það gert á aðalfundi. Háskólakeppnisstjóri sér um að skipuleggja Forritunarkeppni Háskólanna á Íslandi og keppnisstaði á Íslandi fyrir Norðurlandakeppnina í Forritun (NCPC).